Eigendur hrossa minntir á að sjá þeim fyrir aðgangi að vatni

Mynd:mast.is
Mynd:mast.is

Matvælastofnun vekur athygli á því að vegna viðvarandi frostatíðar eru hrossahólf nú víða orðin vatnslaus og er breytinga ekki að vænta á næstu dögum. Því minnir stofnunin á skyldur eigenda og umráðamanna til að sjá hrossum á útigangi fyrir aðgangi að vatni eða snjó til að tryggja heilsu þeirra og velferð.

Á vef Matvælastofnunar er að finna ábendingar til hrossaeigenda um velferð hrossa á útigangi þar sem segir meðal annars:

Hross geta uppfyllt þarfir sína fyrir vatn með því að éta snjó en oft og tíðum tekur fyrir aðgang að vatni í fannfergi. Mjólkandi hryssur eru í mestri vökvaþörf en aðrir viðkvæmir hópar eru ungviði í vexti og hross sem fyrir aldurs sakir eru farin að ganga á vöðva og/eða með undirliggjandi efnaskiptasjúkdóma. Í frostatíð verður snjórinn óaðgengilegur og við þær aðstæður getur þurft að vatna hrossum eða brjóta upp snjó fyrir þau. Mikilvægt er að auka ekki frekar á vatnsþörfina með saltgjöf, bætiefnum steyptum í melassa eða próteinríku fóðri á meðan vatn er af skornum skammti. Hægt er að gefa slíkt í annan tíma.

 

Fleiri fréttir