Feðgar mætast í Borgunarbikarnum

Dregið hefur verið í bikarkeppni KSÍ, Borgunarbikarnum, fyrir árið 2015. Í karlaflokki í annarri umferð leika saman á Akureyri 1. deildarlið Þórs og 2. deildarlið Tindastóls, sem er kannski ekki frásögu færandi, nema hvað að nú ber svo við að þjálfarar liðanna takast á. Það eru feðgarnir Halldór Jón Sigurðsson (Donni) þjálfari Þórs, og fyrrum þjálfari Tindastóls, og faðir hans Siggi Donna (Sigurður Halldórsson) sem nú þjálfara Tindastól.

„Það verður örugglega hart tekist á inni á vellinum en einnig má búast við átökum og hvössum orðaskiptum á hliðarlínunni,“ segir í fréttatilkynningu frá knattspyrnudeild Tindastóls.

Leikurinn verður á Akureyri þann 19. maí nk.

Fleiri fréttir