Féll niður um vök á vélsleða
feykir.is
Skagafjörður
18.01.2019
kl. 11.45
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki var kölluð út sl. þriðjudag til að aðstoða vélsleðamann sem hafði fallið niður um vök á Áshildarholtsvatni. Fljótlega kom þó afturköllun þar sem maðurinn komst á þurrt af sjálfsdáðum.
„Við fengum svo beiðni um að koma og ná sleðanum upp sem okkur tókst að lokum,“ segir á Facebooksíðu Skagfirðingasveitar en þar má sjá nokkrar myndir frá verkefninu en átta manns tóku þátt í því.