Fimm ný gjaldfrjáls vefnámskeið hjá Farskólanum

Farskólinn, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, bauð nýlega íbúum Norðurlands vestra upp á fimm gerðir fjarnámskeiða í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og stéttarfélögin Ölduna, Verslunarmannafélag Skagafjarðar, Sameyki, Samstöðu og Kjöl. Námskeiðin, sem voru öllum opin og gjaldfrjáls fyrir íbúa landshlutans, vöktu mikla lukku og heppnuðust þau vel en alls sóttu 165 manns þessi námskeið. Því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn og bjóða upp á fimm ný námskeið.

Skráning á námskeiðin fer fram hjá Farskólanum. Sextán pláss eru á námskeiðið Ræktaðu þitt eigið grænmeti en 20 pláss eru á hin námskeiðin.

Eftirtalin námskeið eru í boði:

22. apríl: Jákvæð andleg orka á tímum óvissu – Gyða Kristjánsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi.
28. apríl: Ræktaðu þitt eigið grænmeti – Auður Ottesen, garðyrkjufræðingur.
29. apríl: Samskipti í samkomubanni – Sigríður Ólafsdóttir, PCC markþjálfi hjá Mögnum.
5. maí: Kvíði barna og unglinga á tímum COVID – Eyrún K. Gunnarsdóttir, sálfræðingur.
6. og 13. maí: Vellíðan heima með góðu skipulagi – Virpi Jokinen, vottaður skipuleggjandi.

Fleiri fréttir