Finni gefur Veiðisafninu góða gripi

Sigurfinnur Jónsson veiðimaður og Páll Reynisson veiðimaður- og safnstjóri Veiðisafnsins. Mynd: Veiðisafnið.
Sigurfinnur Jónsson veiðimaður og Páll Reynisson veiðimaður- og safnstjóri Veiðisafnsins. Mynd: Veiðisafnið.

Hinn landskunni veiðimaður Sigurfinnur Jónsson frá Sauðárkróki hefur ánafnað Veiðisafninu á Stokkseyri persónulega muni ásamt Beretta haglabyssu sem hann notaði til veiða í fjölda mörg ár.

Páll Reynisson safnstjóri Veiðisafnsins segir um höfðinglega gjöf að ræða en þessir munir hafa verið í sýningu á Veiðisafninu um nokkurn tíma. Vart þarf að kynna Sigurfinn veiðimann enda löngu landsþekktur af sínum veiðum og má nefna að hann hefur gengið til rjúpna í 70 ár og haldið veiðibækur alla sína tíð.

Beratta haglabyssa Sigurfinns ásamt persónulegum munum„Gjöf Sigurfinns inniheldur m.a. ljósmyndir, dagbók, skotapakka og skinn af forláta villisvíni sem hann veiddi í Póllandi ásamt hleðslutækjum auk Beretta haglabyssu, tvíhleypa af bestu gerð ásamt eintaki af bókinni Háspenna lífshætta sem um hann var rituð fyrir nokkrum árum sem Árni Gunnarsson skráði. Stjórn Veiðisafnsins þakkar Sigurfinni fyrir þessa höfðinglegu gjöf og eru munirnir nú til sýnis í öðrum af sýningarsölum safnsins,“ segir Páll.

Fleiri fréttir