Fjárdagur í Fljótum

Smaladróni Fljótamanna er meðal þess sem kynnt verður á Fjárdegi í Fljótum. 
Mynd: Skjáskot úr smaladrónanum.
Smaladróni Fljótamanna er meðal þess sem kynnt verður á Fjárdegi í Fljótum. Mynd: Skjáskot úr smaladrónanum.

Á laugardaginn stendur Fjárræktarfélag Fljótamanna fyrir hinu magnaða fjárdegi sínum í fjórða skiptið. Að þessu sinni hefur viðburðinum verið valinn staður að Ökrum í Flókadal í Vestur-Fljótum.

Þar býr Örn Þórarinsson eðalbóndi og netbóksali. Til stendur að dæma lambhrúta og bjóða líflömb til sýnis og sölu. Þá verður smaladróni Fljótamanna kynntur og bæirnir bjóða upp á bakkelsi og aðrar veitingar.

Í tilkynningu um viðburðinn er vakin athygli á því að einungis má flytja lömbin innan Tröllaskagahólfs.

 

 

 

Fleiri fréttir