Skellt í eina hóp-selfí áður en lagt var í'ann. MYNDIR: ÓAB
Í gær fór fram á Sauðárkróki Fjölskylduhlaup í tilefni af Gulum september en gulur er litur sjálfsvígsforvarna. Hlaupið var frá sundlauginni en einnig máttu þátttakendur ganga eða hjóla. Ágæt þátttaka var í hlaupinu en þó mögulega heldur færri en árið á undan.
„Við erum ánægð með hvernig til tókst og mjög þakklát fyrir þátttöku og jákvæðni samfélagsins gagnvart þessum viðburði,“ sagði Helga Jónína Guðmundsdóttir hjá Kaupfélagi Skagfirðinga þegar Feykir hafði sanband en það voru KS og Vörumiðlun sem stóðu fyrir hlaupinu.
Feykir lofaði þátttakendum í gærdag blíðu og stilltu veðri eftir að hafa kíkt á heimasíðu Veðurstofunnar. Það var reyndar sæmilega hlýtt en nánast um leið og þátttakendur þustu af stað þá fór að rigna og bætti um leið í vind. Þó alls ekki þannig að það væri eitthvað ves.
Ágæt stemning var við sundlaugina áður en hlaupið hófst. Margir mættu klæddir í gulan fatnað. Þá var hægt að kaupa gula boli á staðnum til styrktar Píeta samtökunum og einnig var tekið við frjálsum framlögum á staðnum til styrktar samtökunum. Feykir var á staðnum og smellti nokkrum myndum af hlaupagikkum af ýmsu tagi.
Píeta samtökin eru íslensk frjáls félagasamtök sem vinna að sjálfsvígs- og sjálfsskaðaforvörnum og veita fólki í sjálfsvígshættu, aðstandendum og syrgjendum stuðning. Samtökin byggja starf sitt á hugmyndafræði samnefndra samtaka á Írlandi.
Þeir sem vilja koma að því að styrkja þetta góða málefni geta millifært á reikning Píeta: kt. 410416-0690 / 0301-26-041041