Fjórtán aðilar vilja byggja eða kaupa

Sveitarfélagið Skagafjörður er meðal þeirra sem vilja koma upp svokölluðum leiguheimilum.
Sveitarfélagið Skagafjörður er meðal þeirra sem vilja koma upp svokölluðum leiguheimilum.

Fjórtán aðilar sóttu um stofnframlög úr ríkissjóði til byggingar eða kaupa á tæplega 600 íbúðum, svokölluðum Leiguheimilinu sem ætlað er að koma til móts við húsnæðisvanda tekjulægri einstaklinga og millitekjuhópa.

Meðal hinna fjórtán aðila eru Skagfirskar leiguíbúðir hses. en á fundi byggðaráðs þann 20. október var lögð fram umsókn frá húsnæðisséreignarstofnuninni um stofnframlag og viðbótarframlag frá Sveitarfélaginu Skagafirði til byggingar átta leiguíbúða. Samþykkti byggðarráð að leggja fram stofnframlag til byggingar tveggja fjölbýlishús, samtals átta íbúða, í formi niðurfellingar á lóða- og gatnagerðargjöldum á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016.

Áformað er að fyrstu Leiguheimilin fari í byggingu að lokinni úthlutun og er áætlað að fyrstu íbúarnir geti flutt inn strax á næsta ári. Íbúðalánasjóður er nú að kanna hvar þörfin fyrir hagkvæmt leiguhúsnæði er mest, en á næstu vikum mun sjóðurinn úthluta allt að 1,5 milljörðum til þessa verkefnis.

Hugmyndin um Leiguheimili byggir á danskri fyrirmynd og var henni nýlega komið á með frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um almennar leiguíbúðir. Felur verkefnið í sér að „félagasamtök, sveitarfélög og lögaðilar sem uppfylla ákveðin skilyrði frá stuðning hins opinbera til að standa að uppbyggingu leiguhúsnæðis. Þar munu íbúar öðlast rétt til öruggrar langtímaleigu en greiðslur verða að meðaltali 20-30% lægri en markaðsleiga í dag,“ segir í fréttatilkynningu.

Jafnframt segir að í einhverjum tilfellum gæti kostnaður leigjenda, að teknu tilliti til húsnæðisbóta, jafnvel orðið allt að helmingi lægri en nú er. Þeir sem sækja um leiguheimili þurfa að vera með tekjur undir skilgreindum tekju- og eignamörkum, en þau eru fyrir meðaltekjum nokkurra hópa, svo sem ungs fólks, eldri borgara og fleiri hópa. Á vefsíðunni leiguheimili.ils.is hefur verið hrundið af stað kynningarátaki um leiguheimili. Þar er meðal annars hægt að skrá sig og gefa upp fjölskyldustærði, æskilega stærð leiguheimilis og æskilega staðsetningu, en er þær upplýsingar meðal annars ætlaðar til að meta þörfina fyrir leiguheimili. 

Fleiri fréttir