Fleiri á kjörskrá á Norðurlandi vestra en 2003 og 2013

Alls eru 5.353 kjósendur á kjörskrá á Norðurlandi vestra. Nú erum um tveir og hálfur klukkutími þar til síðustu kjörstaðir loka og fyrstu tölur ættu að birtast í kosningavökum á sjónvarpsstöðvum um svipað leyti.
Alls eru 5.353 kjósendur á kjörskrá á Norðurlandi vestra. Nú erum um tveir og hálfur klukkutími þar til síðustu kjörstaðir loka og fyrstu tölur ættu að birtast í kosningavökum á sjónvarpsstöðvum um svipað leyti.

Það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum að kosið er til Alþingis í dag. Tölfræðinördar ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð á kjördag og lengi má velta fyrir sér ýmsum tölum, áður en þær tölur sem skipta verulegu máli fara að birtast. Feykir rýndi í fjölda kjósenda á kjörskrá, samkvæmt upplýsingum á vef Þjóðskrár Íslands.

Hver maður sem náð hefur átján ári aldri er tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti lögheimili samkvæmt íbúaskrá fimm vikum fyrir kjördag, að þessu sinni 24. september. Á kjörskrá í Norðvestur kjördæmi eru nú 21.479 kjósendur en voru 21.318 árið 2013, eða 0,75% færri en nú. Árið 2003 voru 21.247 kjósendur í Norðvestur kjördæmi, eða 1,1% færri en nú. Norðvesturkjördæmi er fámennasta kjördæmi landsins, næst fámennast er Norðausturkjördæmi með 29.569 á kjörskrá.

Fjöldi á kjörskrá í hverju sveitarfélagi á Norðurlandi vestra (Húnavatnssýslum og Skagafirði) er eftirfarandi:

Húnaþing vestra: 881

Húnavatnshreppur: 302

Blönduós: 622

Sveitarfélagið Skagaströnd: 347

Skagabyggð: 75

Sveitarfélagið Skagafjörður: 2.984

Akrahreppur: 142

Alls: 5.353

Fyrstu kjörstaðir opnuðu klukkan níu í morgun. Kjörfundir standa lengst til klukkan 22 í kvöld. Kjörsókn á Norðurlandi vestra var um 40% klukkan 16 í dag, svipað og í undanförnum kosningum. Fyrstu tölur eru væntanlegar rétt fyrir klukkan 22 og síðustu tölur ættu að birtast klukkan átta eða níu í fyrramálið, samkvæmt upplýsingum sem fram komu í kvöldfréttum RÚV. Kosningarvökur verða á RÚV og Stöð 2, auk þess sem vefmiðlar fylgjast vel með nýjustu tölum.

 

 

Fleiri fréttir