Forystufé að seljast upp
Bókin Forystufé eftir Ásgeir á Gottorp sem nýlega var endurútgefin hjá Bókaútgáfunni Sæmundi er nú að verða uppseld. Að sögn Bjarna Harðarsonar hjá Bókaútgáfunni Sæmundi hjá eru örfá eintök eftir þar, sem á eftir að skipta á milli óteljandi pantana sem fyrir liggja. „Þetta eru meiri og betri viðtökur en maður hefði þorað að vona.“
„Bókin er að vísu til sölu mjög víða þannig að einhverjar verslanir eiga fáein eintök eftir, en það er vissara að tryggja sér eintak, fyrir þá sem eru ákveðnir að ná sér í eintak fyrir jólin, enda bara vika til jóla,“ segir Bjarni. Þrjú þúsund eintök voru prentuð af bókinni. Bjarni segir að efnið virðist höfða til fólks þó að um sé að ræða endurútgefna bók. „Þetta er uppruni okkar allra, allir þeir sem eiga ættir langt aftur á Íslandi eiga ættir til sauðfjárbænda. Í bókinni eru margar sögur af Norðurlandi, enda forystufjárræktin langsterkust á Norðurlandi,“ segir Bjarni að lokum.