Fríða Eyjólfsdóttir nýr blaðamaður Feykis

Kristín og Fríða fara yfir málin. Mynd: PF.
Kristín og Fríða fara yfir málin. Mynd: PF.

Búið er að ráða Fríðu Eyjólfsdóttur í stöðu blaðamanns Feykis sem auglýst var laust til umsóknar fyrir skömmu. Alls sóttu níu manns um stöðuna, þrír karlmenn og sex konur.

Fríða er grunnskólakennari að mennt og hefur starfað sem kennari við Grunnskólann austan Vatna á Hofsósi í mörg ár en frá síðastliðnu hausti hefur hún verið í leyfi frá kennslu og unnið í Sundlaug Hofsóss. Fríða er búsett á Hofsósi gift Árna Bjarkasyni og eiga þau tvær dætur.

Fríða tekur við starfinu af Kristínu Sigurrós Einarsdóttur sem starfað hefur á Feyki frá 1. apríl 2013 en mun senn snúa sér að öðrum hlutum. Feykir býður Fríðu velkomna til starfa og þakkar Kristínu fyrir gott og farsælt samstarf og óskar henni velfarnaðar á nýjum slóðum.

Fleiri fréttir