Fullskipaður listi Bjartrar framtíðar kynntur

G. Valdimar Valdemarsson oddviti Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi.
G. Valdimar Valdemarsson oddviti Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi.

Fyrsta sæti á lista Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi skipar G. Valdimar Valdemarsson, framkvæmdastjóri. Hann tók þátt í að stofna Bjarta framtíð með þá von í brjósti að Björt framtíð gæti unnið öðruvísi.  Annað sæti á lista Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi skipar Kristín Sigurgeirsdóttir, skólaritari og MLM nemi og Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, skólaliði og handverkskona, skipar þriðja sæti en hún leggur áherslu á menntamálin.

 

Valdimar telur að fulltrúar Bjartrar framtíðar hafi náð árangri við að nálgast verkefni og vandamál samtímans með nýjum aðferðum þar sem við greinum veikleika og styrkleika, ógnir og tækifæri og byggjum stefnumörkun á staðreyndum og rannsóknum en ekki eingöngu á pólitískri hugmyndafræði. G. Valdimar vill að stjórnmál snúist meira um markmið og framtíðarsýn og er tilbúinn að leggja á sig mikla vinnu við draga fram þau markmið sem við getum sameinast um þvert á stjórnmálaflokka og hagsmuni. Hans sýn er að við myndum ekki deila svo mikið um leiðirnar ef markmiðin eru skýr.

Kristín Sigurgeirsdóttir, skólaritari og MLM nemi Umhverfis- og loftslagsmálin eru Kristínu hugleikin. Kristín lýsir sér sem náttúrubarni, sem er annt um að afkomendur okkar allra fái að njóta náttúrunnar og umhverfisins eins og við og forverar okkar hafa gert. En til þess verðum við að gæta vel að því hvað við gerum og hvað við framkvæmum. Náttúran á að njóta vafans, það á ekki að gefa neinn afslátt í umhverfis- og loftslagsmálum.

Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, skólaliði og handverkskona

Ásthildur leggur áherslu á menntamálin en að hennar mati berjast skólar og leikskólar í bökkum við að veita grunnþjónustu og hafa ekki fjárhagslegt svigrúm til að gera betur. Skoða þarf betur tekjuskiptingu sveitarfélaga og ríkis í þessu samhengi. Ásthildur vill hlúa að og styðja unga fólkið okkar betur en nú er gert . Ísland getur svo mikið betur, hennar sýn er að horft sé til framtíðar en ekki bara til skamms tíma. Mannúð og mannréttindi eru henni ofarlega í huga, til að mynda aðbúnaður sem hælisleitendum er boðið upp á stenst ekki lágmarkskröfur og misnotkun á erlendu vinnuafli er þögguð niður og látin viðgangast. Þessu og mörgu öðru vil Ásthildur beita sér fyrir á Alþingi.

 

Norðvesturkjördæmi 

1.         G. Valdimar Valdemarsson, framkvæmdastjóri 

2.         Kristín Sigurgeirsdóttir, skólaritari og MLM nemi 

3.         Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir, skólaliði og handverkskona 

4.         Matthías Freyr Matthíasson, barnaverndarstarfsmaður og laganemi

 

5.         Gunnsteinn Sigurðsson, umsjónarþroskaþjálfi og grunnskólakennari 

6.         Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, fjallaleiðsögumaður 

7.         Elín Matthildur Kristinsdóttir, deildarstjóri og meistaranemi 

8.         Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur

 

9.         Haraldur Reynisson, kennari 

10.       Emilía Íris Líndal Garðarsdóttir, myndlistarmaður 

11.       Vilborg Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi 

12.       Hafþór Óskarsson, ferðamálafræðingur

 

13.       Ingunn Jónasdóttir, kennari 

14.       Guðmundur Björnsson, verkfræðingur og gæðastjóri 

15.       Kristján Guðmundsson, myndlistarmaður 

16.       Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Fleiri fréttir