Fulltrúar frá Hólum á alþjóðlegri ráðstefnu í Tokyo

Víkingur, Johannes, Guðrún Margrét og Guðrún Jóhanna á ráðstefnunni. MYND AF HÓLAR.IS
Víkingur, Johannes, Guðrún Margrét og Guðrún Jóhanna á ráðstefnunni. MYND AF HÓLAR.IS

Á heimasíðu Háskóla Íslands á Hólum er sagt frá ICEEP ráðstefnunni sem haldin var í Tokyo í Japan daga 26.-30. október. Á ráðstefnunni er fjallað um þjálfunarlífeðlisfræði, hreyfingafræði og fleira sem varðar hin ýmsu hestakyn. Um er að ræða stærstu alþjóðlegu ráðstefnuna á þessu sviði og er hún haldin á 4 ára fresti á mismunandi stöðum í heiminum. Fjórir einstaklingar frá Hestafræðideild fóru fyrir hönd skólans og sáu til þess að Háskóli Íslands á Hólum var vel sýnilegur á ráðstefnunni.

Þau sem fóru voru Johannes Amplatz, Guðrún Margrét Valsteinsdóttir, Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir og Víkingur Gunnarsson en lesa má um erindi þeirra á Hólar.is.

Þar segir m.a. að gerður hafi verið góður rómur að erindunum um íslenska hestinn frá Háskóla Íslands á Hólum og ljóst að þau vöktu töluverða athygli á íslenska hestinum og rannsóknarstarfi okkar um hann. „Nemendur okkar voru til fyrirmyndar og kynntu sínar rannsóknir með miklum sóma á ráðstefnunni. ... Alþjóðlegar ráðstefnur af þessu tagi eru afar mikilvægar til að koma á framfæri rannsóknaniðurstöðum, fræðast um rannsóknir annarra, bera saman bækur sínar, viðhalda tengslum og skapa ný tengsl við aðra vísindamenn sem vinna á sömu fræðasviðum og við hér í Hestafræðideildinni á Hólum.

Fleiri fréttir