Gamlárshlaup 2019
feykir.is
Skagafjörður
27.12.2019
kl. 15.15
Hið árlega Gamlárshlaup (eða ganga) verður haldið á gamlársdag, 31. desember nk. og hefst skráning klukkan 12 í anddyri íþróttahússins á Sauðárkróki. Þátttakendur eru ræstir af stað kl. 13.
Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að þátttakendur geti sjálfir stjórnað hraða og vegalengd en gert er ráð fyrir að allir séu komnir í íþróttahúsið kl. 14:00. Einskins þátttökugjalds er krafist en vegleg útdráttarverðlaun verða veitt að hlaupi loknu.
„Komum saman og eigum góða og heilsusamlega fjölskyldustund á síðasta degi ársins,“ segir í tilkynningunni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.