Golfklúbbur Sauðárkróks verður Golfklúbbur Skagafjarðar

Aðalfundur GSS 2019 var haldinn í golfskálanum á Hlíðarenda a Sauðárkróki í gær, mánudaginn 25. nóvember. Stjórnin gaf kost á áframhaldandi setur og verður því óbreytt næsta árið en í henni sitja Kristján Bjarni Halldórsson, formaður, Halldór Halldórsson, varaformaður, Kristján Eggert Jónasson, gjaldkeri, Dagbjört Rós Hermundsdóttir, ritari, Guðmundur Ágúst Guðmundsson, formaður vallarnefndar, Andri Þór Árnason, formaður mótanefndar og Helga Jónína Guðmundsdóttir, formaður unglinganefndar. Vallarstjóri er Guðmundur Þór Árnason.

Á aðalfundinum var samþykkt lagabreyting um breytt nafn klúbbsins og heitir hann nú Golfklúbbur Skagafjarðar en hét áður Golfklúbbur Sauðárkróks. Áfram verður notuð þrístöfunin GSS.

Í ársskýrslu 2019 kemur fram að mikil gróska afi verið í starfinu, ekki síst í barna og unglingastarfi. Félagsmenn eru nú 167 talsins en voru 154 í lok árs 2018.  Nýliðanámskeið hafa notið vinsælda og eru nýir félagar ætíð velkomnir. Nefndir GSS 2020 eru vel mannaðar og var skemmtinefnd klúbbsins endurvakin.

Í tilkynningu frá klúbbnum segir að GSS gegni mikilvægu hlutverki í ferðaþjónustu og heilsueflandi samfélagi í Skagafirði. Hlíðarendavöllur sé stolt félagsmanna, 29 hektarar að stærð innan vallarmarka og þar með stærsta íþróttasvæði Skagafjarðar en völlurinn er að jafnaði opinn yfir 150 daga á ári og golftímabilið hefur lengst með hlýnandi veðurfari.

Starf GSS er allt árið um kring og færist í inniaðstöðu í Borgarflöt yfir köldustu mánuðina. Þar er m.a. golfhermir og púttaðstaða. 

Vallarnefndin hefur lagt fram metnaðarfulla áætlun um viðhald og framkvæmdir á vellinum til næstu ára en talsverða vinnu þarf að leggja fram til að halda vellinum í fremstu röð 9 holu golfvalla á Íslandi.

Í ársreikningi kemur fram að rekstrarniðurstaða 2019 var neikvæð um 2,2 milljónir eða álíka og árið áður.  Lengt tímabil og aukin starfsemi felur í sér aukinn kostnað. Stjórn GSS vinnur að leiðum til að bæta rekstrarniðurstöðu komandi ára.

Golfklúbburinn fékk góða gjöf frá dugmiklum eldri félagsmönnum sem reistu og gáfu klúbbnum framtíðaraðstöðu fyrir golfbíl. Þá var samþykkt að GSS taki við eignum og skuldum hermafélagsins.

Sigríður Elín Þórðardóttir hlaut háttvísiverðlaun GSÍ. Verðlaunin fær hún fyrir góða framkomu innan sem utan vallar, góða umgengni á vellinum og háttvísi í keppni. Hún spilaði m.a. með kvennaliði GSS í sumar í efstu deild á Íslandsmóti golfklúbba.

 Í lok fundar var Stefán Pedersen kjörinn heiðursfélagi klúbbsins en hann hefur verið drjúgur við ljósmyndun í þágu klúbbsins í gegnum tíðina auk þess að sýna starfseminni lifandi áhuga og vera nánast hluti af vellinum.

Stjórn Golfklúbbs Skagafjarðar horfir björtum augum til ársins 2020 en þá verður klúbburinn 50 ára.  Framundan eru ýmsir viðburðir í tilefni afmælisins, svo sem afmælisferðir, útgáfa afmælisrits og afmælismót.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir