Hæsta fermetraverðið á Sauðárkróki
Í skýrslu Íslandsbanka um íbúðamarkaðinn, sem Íslandsbanki birti á mánudag, er fjallað um íbúðamarkaðinn í hverjum landhluta. Samkvæmt skýrslunni er íbúðaverð hæst Sveitarfélaginu Skagafirði, en þar hefur fermetraverðið verið að meðaltali 162 þúsund krónur fyrstu níu mánuði þessa árs. Þá eiga nærri 60% af íbúðaviðskiptum í landshlutanum sér stað í sveitarfélaginu.
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að í fyrri hafi meðalfermetraverð á Norðurlandi vestra verið lægst á Blönduósi og ef gert sé ráð fyrir sömu verðþróun þar og í landshlutanum í heild fyrir fyrstu níu mánuði þessa árs þá sé meðalfermetraverð á Blönduósi um 100 þúsund krónur. Aðeins tólf kaupsamningar voru gerðir á Blönduósi á árinu 2015, sem nemur þó um 12% af öllum íbúðaviðskiptum í landshlutanum.
Tekið er fram í skýrslunni að opinber gögn Þjóðskrár nái einungis til Skagafjarðar og Blönduóss og því sé ekki frekara niðurbrot eftir bæjum á Norðurlandi vestra í boði. Samkvæmt skýrslunni eru dýrustu íbúðirnar í landshlutanum á bilinu 70-110m2. Fermetrinn í slíkum íbúðum kostaði að meðaltali um 153 þúsund krónur á fyrstu níu mánuðum ársins 2016. Skýrsluna í heil má nálgast vef Íslandsbanka en hún ber yfirskriftina Íslenskur íbúðarmarkaður.