Hákon Kolka hlaut vinning í eldvarnagetraun
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór fram í grunnskólum landsins í nóvember sl. þar sem nemendur í 3. bekk fengu m.a. fræðslu um eldvarnir. Tóku þeir þátt í eldvarnagetraun slökkviálfanna Loga og Glóðar og er nú búið að draga úr réttum lausnum.
Einn nemandi í Skagafirði var dreginn út og fékk m.a. viðurkenningarskjal, reykskynjara og 10 þúsund krónu seðil í verðlaun. Sá heppni heitir Hákon Kolka Gíslason og er nemandi í Varmahlíðarskóla í Skagafirði.
Það var Svavar Birgisson sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Skagafjarðar sem afhenti Hákoni vinninginn.