Háskólinn á Hólum í samstarfi í Noregi og Nígeríu

Háskólinn á Hólum á samstarf við ýmsa erlenda háskóla og rannsóknastofnanir og liggja leiðir starfsmanna skólans víða. Á vef skólans  segir nýlega frá heimsókn deildarstjóra Ferðamáladeildar til Bø í Noregi og einnig af ferð tveggja kennara við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans til Nígeríu.

Þeir Ólafur Sigurgeirsson og Helgi Thorarensen, kennarar við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild, heimsóttu Nígeríu í þeim tilgangi að undirbúa verkefni nemenda Háskóla Sameinuðu þjóðanna næsta haust. Eru verkefnin unnin í samvinnu við háskólann í Ibadan, elsta háskóla landsins og þann virtasta á sviði fiskeldis sunnan Sahara. 

Laufey Haraldsdóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar, fór í heimsókn til Bø í síðustu viku en undanfarin misseri hefur skólinn verið að styrkja samstarf sitt við Háskólann í Suðaustur-Noregi, einkum starfsstöð hans í Bø á Þelamörk, að því er segir á vef Háskólans á Hólum

Í ferð sinni vann Laufey að verkefni um loftslagsbreytingar, ferðaþjónustu og matfiskinn bleikju. Þar er um að ræða þverfaglegt verkefni sem Guðrún Helgadóttir leiðir, en hún er prófessor við háskólanna báða. Einnig kemur Helgi Thorarensen, prófessor við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum að verkefninu ásamt sérfræðingi í loftslagsmálum við háskólann í Bø og tveimur doktorsnemendum þaðan. 

Fleiri fréttir