Heildarbætur vegnu riðu gætu numið um 200 milljónum

Talið er að heildarbætur til bænda á þeim fimm bæjum í Skagafirði sem hafa þurft að skera fé sitt vegna riðuveiki í haust, gætu numið um 200 milljónum króna. Fjárheimild til bóta fæst að hluta með sérstakri heimild í fjárlögum og að hluta í fjáraukalögum, hefur Fréttablaðið eftir Haraldi Benediktssyni, varaformanni fjárlaganefndar. 

Möguleg bótafjárhæð kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins.

„Enn hafi þó engar bætur verið greiddar en í fjárlögum sé gert ráð fyrir 123 milljónum í málaflokknum Greiðslur vegna varna gegn dýrasjúkdómum. Í svari ráðherra komi fram að nauðsynlegt þurfi að hækka fjárhæðina meira en sem nemur fyrirhugaðri 50 milljón króna hækkun á fjárlögum 2021. Það fari eftir hvernig bótagreiðslur skiptist milli ára. Fréttablaðið hefur eftir Haraldi Benediktssyni, varaformanni fjárlaganefndar, að núverandi reglur og stjórnsýsluframkvæmd vegna riðuveiki sé nú í mati og endurskoðun hjá ráðuneytinu í samráði við Matvælastofnun,“ segir í frétt um málið á rúv.is.

Fleiri fréttir