,,Heimamenn með hjartað á réttum stað”
Það er orðið ljóst að lið Tindastóls er fallið niður í 2. deild eftir þrjú sumur í næstefstu deild. Að sögn Bjarka Más Árnasonar þjálfara liðsins ætla strákarnir að klára tímabilið með sæmd og umfram allt að njóta síðustu leikjanna í 1. deild að sinni.
Bjarki segir sumarið hafa verið lærdómsríkt, það sé búið að vera erfitt en sama hvað hefur bjátað á þá hefur hópurinn staðið saman og menn lagt sig fram.
-Ungir Tindastólsmenn hafa fengið dýrmæta reynslu á flottum vettvangi og mun það hjálpa þeim að þroskast sem leikmenn og einstaklingar. Það var alltaf búist við því að þetta yrði erfitt. Það var ákveðið frá fyrstu stundu eftir að ég kom inn í þetta að það ætti að keyra þetta á heimamönnunum og sjá hvar við stæðum. Strákarnir geta borið höfuðið hátt þó svo að liðið sé fallið niður um deild, flestir af þeim hafa gefið líf og sál í þetta í sumar og eiga framtíðina fyrir sér, segir Bjarki.
Viðtalið í heild sinni má lesa í Feyki vikunnar.