Héraðsvötnin brutu sér leið yfir varnargarð rétt framan Stokkhólma - Myndband

Einar sýnir blaðamanni verksummerki flóðsins en eins og sést er vatnið komið ansi nærri hlaðinu í Stokkhólma. Handan vatna sér í Blönduhlíðina. Mynd: PF.
Einar sýnir blaðamanni verksummerki flóðsins en eins og sést er vatnið komið ansi nærri hlaðinu í Stokkhólma. Handan vatna sér í Blönduhlíðina. Mynd: PF.

Betur fór en á horfðist er Héraðsvötn í Skagafirði fóru að flæða yfir varnargarð framan við Stokkhólma og ógnuðu bæði hrossum og byggingum. Brugðust ábúendur fljótt við og fengu verktaka til að fylla í skarðið svo ekki hlytist skaði af.

Að sögn Önnu Sigríðar Sigmundsdóttur og Einars Ólafssonar, eigenda Stokkhólma, varð fyrst vart við flóðið á mánudag í síðustu viku. Bróðir Önnu hefur litið efir hrossunum á bænum og varð þess áskynja að Vötnin væru að renna í átt að hrossunum sem voru skammt austan íbúðarhússins. Hafði hann gefið daginn áður og þá allt eins og átti að vera. Anna segir hólfið sem hrossin voru í alltaf verið öruggt þau ár sem þau Einar hafi átt jörðina. „Vatnið var komið ofan í skurð sem ekki hefur gerst áður og flætt yfir og komið hingað heimundir,“ sagði Anna er Feykir tók hús á þeim hjónum fyrir helgi. „Við erum búin að vera hér í 23 ár og svona lagað ekki gerst í okkar tíð. Vötnin hafa flætt en það er varnargarður meðfram túninu sem hefur haldið að mestu leyti. Það hefur aðeins komið vatn á túnin en ekki svona mikið,“ segir hún.

Einar segir að þau hafi hringt í vin og haft samband við Svein Árnason hjá Víðimelsbræðrum sem brást skjótt við og mættu tækjamenn með stórvirkar vinnuvélar til að laga varnargarðinn.

Meðfylgjandi drónamyndband tók Jóhann Ingi Haraldsson af svæðinu sl. föstudag.

 

 

Fleiri fréttir