Hrafney Lea í æfingahóp U16
Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið leikmannahóp til æfinga dagana 19.-20. ágúst. Einn leikmaður úr Lengjudeildarliði Stólastúlkna er í hópnum en það er Hrafney Lea Árnadóttir en hún hefur leikið flesta leiki Tindastóls í sumar auk þess að spila með 3. flokki.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Vinnustaðaklasinn í frystihúsinu á Hofsósi hlaut styrk
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað rúmum 27 milljónum kr. í styrki til 14 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar. Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Eitt verkefni á Norðurlandi vestra hlaut styrk en vinnustaðaklasinn í gamla frystihúsinu á Hofsósi fékk úthlutað fjórum milljónum í flokknum Ný uppbygging á miðlungssvæði.Meira -
Silfrastaðakirkja er komin heim
Í gær 4. nóv. lauk 5 ára dvöl Silfrastaðakirkju á Sauðárkróki en þar hefur hún verið til endurbyggingar hjá Trésmiðjunni Ýr. Þar var hún undir verndarvæng Bjössa Svavars, Einars Guðmunds og fleirri góðra manna. En sem sagt þá var loks allt klárt til þessa að flytja kirkjuna heim. Mættur var Árni Helgason frá Ólafsfirði og kranamaður hans, Sigurður Ólafsson. Árni hafði séð um að hífa kirkjuna fyrir 5 árum og taldi rétt að klára verkið. Einar á Kúskerpi var svo mættur með treilerinn sinn til aka gripnum heim eins og hann hafðu gert hérna um árið. Guðmundur Sigurðsson frá Minjastofnun hafði eftirlit með flutningum.Meira -
180 börn á hrekkjavökuballi á Blönduósi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 05.11.2026 kl. 10.46 oli@feykir.isÞað var heldur betur líf og fjör í Félagsheimilinu á Blönduósi í gærkvöldi þegar 180 börn á aldrinum 10–12 ára af öllu Norðurlandi vestra komu saman á hrekkjavökuballi. Félagsheimilið var skreytt í anda hrekkjavökunnar og mátti sjá alls konar skemmtilegar og skrautlegar fígúrur á svæðinu.Meira -
Tröll geta verið krútt
Ímyndanaraflið fékk að malla af miklum móð á Héraðsbókasafni Skagfirðinga á Sauðárkróki nú á mánudaginn. Þá mætti brúðulistakonan Greta Clough frá Hvammstanga til leiks og leiðbeindi áhugasömum ungum listamönnum í tröllagerð. Tröllabrúðusmiðja fyrir börn var hluti af dagskrá barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls sem lauk reyndar í gærkvöldi með skralli á Blönduósi.Meira -
Einar Kára og Sigurður Hansen kynna nýja bók í Kakalaskála
Feyki barst óvænt á síðustu stundu auglýsing í síðasta tölublað þar sem tilkynnt var um fögnuð í Kakalaskála í Blönduhlíð í tilefni af útkomu bókar Einars Kárasonar um húsráðanda, Sigurð Hansen. Það verða örugglega margir sem hlakka til þess að orna sér með þá sögumenn í kjöltunni, enda segir í auglýsingunni: Bráðskemmtileg bók í skagfirskum gleðianda! Feykir spurði Einar út í bókina, Sigga og útgáfufögnuðinn sem verður í Kakalaskála kl. 17 á laugardaginn.Meira
