Hreinsun hafin í Varmahlíð eftir aurskriðuna
„Það sem er nýjast er að við teljum okkur vera búin að finna upptök þess vatns sem kom upp og það er verið að vinna í því að drena þetta svæði,“ sagði Sigfús Ingi Sigfússon, Sveitastjóri Skagafjarðar, í samtali við Feyki upp úr fjögur í dag.
Hreinsun á svæðinu hófst í morgun og nú þegar er búið að moka út úr húsunum þeirri drullu sem fór þar inn.
„Það er bara verið að vinna í hreinsun og skráningu muna upp á tryggingar að gera. Þessi hreinsun heldur áfram næstu daga og það er misjafnt eftir húsunum hvað þarf að laga mikið,“ sagði Sigfús.
Sigfús var spurður að því hvort skemmdirnar væru meiri eða minni en búist var við í upphafi.
„Það er voðalega erfitt að segja til um það, ef ég á að segja mína persónulegu skoðun þá óttaðist ég meiri skemmdir en það er verið að fara yfir hlutina, kanna raka í veggjum og slíku. Við erum að bíða eftir niðurstöðu, það komu sérfræðingar tveir frá náttúruhamfaratryggingum í gær og þeir gerðu, og eru að vinna matsgerð sem kemur. Þá liggur þetta skýrar fyrir,“ Sagði Sigfús sveitastjóri Skagafjarðar að lokum.
Fundur almannavarnarnefndar Skagafjarðar verður klukkan sjö í kvöld og þá verður tekin ákvörðun um afléttingu eða áframhaldandi rýmingu á þeim húsum sem ennþá eru rýmd í Varmahlíð.
/SMH