Húsgögn úr gamla barnaskólanum til sölu
Næstkomandi föstudag verður opið hús í gamla barnaskólanum við Freyjugötu á Sauðárkróki frá kl:16:30 - 19:00 en þá verða boðnir til sölu ýmsar gerðir borða og stóla, ofnar, hurðir hillur o.fl. Eins og kunnugt er var skólahúsnæðið selt og er nú komið að afhendingu þess og þá þarf að tæma það.
Það eru krakkarnir í 10 bekk Árskóla sem sjá um söluna og fá vinnulaun fyrir sem rennur í fjáröflun þeirra til Danmerkurferðar næsta vor en afrakstur sölunnar rennur til góðgerðamála. “Um að gera að mæta og gera tilboð, engin föst verð. Allt selst á mjög góðu verði. Fyrstur kemur fyrstur fær!”, segir í tilkynningu frá krökkunum. Gengið er um aðalinngang.
Hægt er að skoða myndir á sölusíðu á Facebook. https://www.facebook.com/groups/267761403250696/?fref=ts