Húsnæðisþörf metin fyrir iðn- og tæknimenntun

Á myndinni má sjá fyrirhugaða stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki sem kynnt hafa verið fyrir sveitarfélögunum á svæðinu. Samkvæmt teikningum sem lagðar hafa verið fram er um að ræða 1200 fermetra viðbyggingu og er kostnaðurinn áætlaður um 720 milljónir króna. Mynd: Verkfræðistofan STOÐ á Sauðárkróki
Á myndinni má sjá fyrirhugaða stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki sem kynnt hafa verið fyrir sveitarfélögunum á svæðinu. Samkvæmt teikningum sem lagðar hafa verið fram er um að ræða 1200 fermetra viðbyggingu og er kostnaðurinn áætlaður um 720 milljónir króna. Mynd: Verkfræðistofan STOÐ á Sauðárkróki

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað starfshóp um greiningu á húsnæðisþörf fyrir iðn- og tæknimenntun á Íslandi. Aðsókn í slíkt nám hefur aukist mikið undanfarið, m.a. vegna aukinnar áherslu stjórnvalda á eflingu þess.

„Viðbúið er að aðsóknin verði áfram mikil og við þurfum að geta boðið nemendum upp á nútímalega aðstöðu, sem tekur mið af örri þróun innan greinanna. Víða er kennsluaðstaða fullnýtt eða óhentug og því er þörf á heildstæðri endurskoðun á húsnæðismálunum. Góð kennsluaðstaða er mikilvægur þáttur í eflingu iðnmenntunar til framtíðar og því mun starfshópurinn gera þarfagreiningu á landsvísu, sem svo nýtist til úrbóta og stefnumótunar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu segir að iðn- og tækninám sé kennt í um 14 framhaldsskólum vítt og breitt um landið en aðstaða í skólunum sé misjöfn. Stærsti framhaldsskóli landsins er Tækniskólinn, en hann sækja 2400 um nemendur í dagskóla og um 730 í fjarnámi. Starfsemi þess skóla fer nú fram í níu byggingum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið sem hentar í mörgum tilfellum illa og er kostnaðarsamt að aðlaga að þeim kröfum sem gera þarf til iðn- og tæknináms. 

Starfshópinn skipa: Jón Björgvin Stefánsson formaður, án tilnefningar, Ragnheiður Bóasdóttir, án tilnefningar, Guðmundur Axel Hansen, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðherra og Hróðný Njarðardóttir, tilnefnd af Framkvæmdasýslu ríkisins. 

Ráðgert er að starfshópurinn skili skýrslu til ráðherra fyrir 1. desember 2020.

Tengd frétt: Stefnt að stækkun verknámshúss FNV

 

Fleiri fréttir