Hver hreppir slaufuna? - Uppboð til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar
Félagar úr Karlakórnum Heimi hafa ákveðið að gefa eina bláa Mottumars slaufu og er hún í uppboði til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar. Nú er um að gera að bjóða í slaufuna og um leið styrkja gott málefni.
Boð í slaufuna eiga að sendast á netfangið gottigogginn@simnet.is.
