Hvernig væri að miða laun þingmanna við laun forseta ASÍ?
Eins og flestir ættu að kannast við hækkaði Kjararáð þingfararkaup alþingismanna um tæp 45 prósent nú um mánaðarmót eða alls um 338.254 krónum á mánuði. Hækka laun þeirra þá úr 762.940 krónur á mánuði í 1.101.194 krónur. ASÍ krefst þess að ákvörðun kjararáðs verði dregin til baka því annars verður óstöðugleiki og upplausn á vinnumarkaði í boði Alþingis.
Það eru fleiri sem njóta úrskurðar Kjararáðs að þessu sinni því frá og með 1. nóvember 2016 skulu laun forsætisráðherra að meðtöldu þingfararkaupi vera 2.021.825 krónur á mánuði en laun annarra ráðherra að meðtöldu þingfararkaupi 1.826.273 krónur á mánuði. Forseti Íslands fær svo 2.985.000 krónur í laun á mánuði eftir úrskurð Kjaranefndar.
Sitt sýnist hverjum um þessa hækkun helstu ráðamanna landsins og hafa menn skipst á skoðunum á samfélagsmiðlum. Gunnar Bragi Sveinsson segir á Fésbókarsíðu sinni að launahækkun alþingismanna sé mikil og afar óheppilegt að laun hækki svona mikið í einu. Hann telur að Kjararáð þurfi að endurskoða vinnubrögð sín og taka launaþróun oftar til skoðunar.
Þá segir Gunnar: „Að þessu sögðu þá tel ég að laun þingmanna hafi verið of lág, séu kannski að verða sanngjörn eftir þessar breytingar. Þingmenn og fjölskyldur þeirra þekkja að þingmenn eru í vinnunni alla daga ársins allan sólarhringinn. Forsvarsmenn launþegahreyfinga gagnrýna þessa hækkun sem er nokkuð skondið því amk. sumir þeirra eru með svipuð laun eða hærri! Hvernig væri að laun þingmanna tækju t.d. mið af launum forseta ASÍ?“ Þar vísar Gunnar í frétt á DV frá því í janúar 2014 þar sem segir að verkalýðsforkólfar fái hundruð þúsunda króna launahækkun.
Á heimasíðu Kjararáðs má sjá að alls 18 úrskurðir hafa verið kveðnir upp hjá ráðinu um laun hinna ýmsu starfsmanna ríkisins á árinu 2016. Hér eru nokkur dæmi um mánaðarlaun en þá vantar þær einingar sem bætast við fyrir alla yfirvinnu er starfinu fylgir.
Frá og með 1. janúar 2016 skulu mánaðarlaun ríkissaksóknara 1.292.529 krónur.
Mánaðarlaun ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis skulu vera samkvæmt launatöflu kjararáðs 1.339.043 krónur. Mánaðarlaun annarra ráðuneytisstjóra skulu vera samkvæmt launatöflu kjararáðs 1.294.693 krónur.
Frá og með 1. janúar 2015 skulu mánaðarlaun ríkislögreglustjóra vera samkvæmt launaflokki 1.094.455 krónur.
Frá og með 1. janúar 2015 skulu mánaðarlaun landlæknis vera samkvæmt launatöflu kjararáðs 1.094.455 krónur.
Frá og með 1. janúar 2016 skulu mánaðarlaun forstjóra Útlendingastofnunar vera samkvæmt launatöflu kjararáðs 957.296 krónur..
Frá og með 1. janúar 2016 skulu mánaðarlaun forstjóra Barnaverndarstofu vera samkvæmt launatöflu kjararáðs 957.296 krónur.
Frá og með 28. október 2015 skulu mánaðarlaun héraðssaksóknara vera 1.170.443 krónur.