Hvessir síðdegis með ofanhríð
Hálka eða snjóþekja er á vegum á Norðurlandi en þó eru aðeins hálkublettir í Skagafirði. Í ábendingu frá veðurfræðingi á vef Vegagerðarinnar segir að hvessa eigi með ofanhríð um landið norðvestanvert. Síðdegis verði snjókoma og skafrenningur frá Snæfellsnesi og Dölum, vestur og norður um Strandir, Skaga, Fljót og utanverðan Eyjafjörð. Hringvegurinn frá Holtavörðuheiði til Akureyrar verður hins vegar að mestu í sæmilegu vari.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 8-13 og dálítil él, en 13-20 og snjókoma síðdegis. Frost 0 til 10 stig, en kaldara í innsveitum í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Norðan 8-13 m/s og él, en þurrt á S- og V-landi. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Austan 8-15 og snjókoma eða él, hægari og úrkomulítið NA-til á landinu. Frost 1 til 15 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Á föstudag:
Hvöss norðaustanátt og víða snjókoma, frost 0 til 8 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Norðaustanátt með snjókomu eða éljum norðan- og austantil á landinu.