Í nógu að snúast hjá Skagfirðingasveit

Á leiðinni heim frá leit að rjúpnaskyttunni, keyrði Skagfirðingasveit fram á erlenda ferðamenn sem höfðu ratað í vandræði. Var spottinn græjaður og bíllinn dreginn upp á veg á ný. Mynd: Steinunn V. Jónsdóttir.
Á leiðinni heim frá leit að rjúpnaskyttunni, keyrði Skagfirðingasveit fram á erlenda ferðamenn sem höfðu ratað í vandræði. Var spottinn græjaður og bíllinn dreginn upp á veg á ný. Mynd: Steinunn V. Jónsdóttir.

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga en meðal verkefna var að aðstoða við gámaflutningavagn, fylgja sjúkrabíl í ófærð og leita að rjúpnaskyttu.

Miðvikudagskvöld í síðustu viku fór gámaflutningavagn út af á Þverárfjallsvegi og fóru tveir menn frá sveitinni til aðstoðar við að aftengja vagninn frá bílnum. Í gámnum voru ýmsar vörur sem færðar voru yfir í annan vagn á sunnudagsmorgun en þangað voru vaskir björgunarsveitarmenn mættir í verkið.

Á laugardagsmorgun fóru sex menn með fjóra sleða í samfloti með Flugbjörgunarsveitarmönnum úr Varmahlíð til leitar að rjúpnaskyttu sem hafði orðið viðskila við félaga sína á Fljótsdalshéraði. Fleiri leitarmenn úr Varmahlíð bættust svo í hópinn um kvöldið. Eins og fram hefur komið í fréttum fannst skyttan í gærmorgun heil á húfi.

Þá var óskað eftir, vegna ófærðar, fylgd björgunarsveitarmanna með sjúkrabíl sem sækja þurfti sjúkling heim að Hólum í Hjaltadal.

Myndir: Steinunn V. Jónsdóttir.

Fleiri fréttir