Indversk landbúnaðartæki til sýnis
Fyrirtækið Vallarnaut verður með Solis traktora og landbúnaðartæki til sýnis í Varmahlíð milli kl 12 og 18:00 þriðjudaginn 18. október.
„Solis traktorar eru frá Indlandi. Fyrstu vélar komu til landsins í sumar og eru viðtökur góðar. Þær eru með þriggja ára ábyrgð. Einfaldleiki er meginmarkmið Solis. Þetta eru eyðslugrannar og sterkar vélar, sem eru gerðar fyrir mikla vinnu enda eru Indverskir bændur þjösnarar og ofbjóða tækjum sínum. Framleiðandinn mætir þeim kröfum með bros á vör, enda ekkert feimnismál í Indlandi að vélum er ofboðið,“ segir í tilkynningu frá Vallarnauti ehf.
Vallarnaut ehf. sem er umboðsaðili Solis á Íslandi verður með Solis 90 hestafla traktor til sýnis í Varmahlíð, minni traktor og önnur tæki og eru allir hvattir til að koma, skoða og kynna sér vöruúrvalið.