Ingvar Óli Sigurðsson maður ársins 2014 á Norðurlandi vestra
Ingvar Óli Sigursson hefur verið útnefndur Maður ársins á Norðurlandi vestra af lesendum Feykis. Í þeim fjölmörgu tilnefningum sem hinn 12 ára gamli Ingvar Óli fékk var hann sagður hafa brugðist hárrétt við þegar móðir hans fékk heilablæðingu á heimili þeirra í júlí sl. Mæðginin voru ein heima þegar atvikið átti sér stað, ásamt yngsta bróður Ingvars sem þá var 3 ára. Ingvar Óli er sonur Hrefnu Samúelsdóttur frá Hvammi á Barðaströnd og Sigurðar Björns Gunnlaugssonar frá Nípukoti í Víðidal.
Blaðamaður Feykis heimsótti fjölskylduna á Hvammstanga í upphafi vikunnar til að færa unga manninum blómvönd af tilefninu, Ingvar Óli tók þakklátur á móti blómvendinum og viðurkenningarskjalinu en hann var augljóslega snortinn yfir útnefningunni og kom fyrir sjónir sem hógvær og afskaplega vel gerður ungur maður.
Tilefni þess að Ingvar Óli var útnefndur maður ársins er atvik sem átti sér stað um kl. 22 þann 22. júlí síðast liðinn. Hrefna, Ingvar Óli og Hafþór Ingi yngsti bróðirinn voru nýkomin inn eftir hafa verið að skreyta húsið fyrir Unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi sem hófst degi síðar. En á Hvammstanga, líkt og víða annarsstaðar, tíðkast að skreyta hverfi bæjarins eftir litum fyrir viðkomandi bæjarhátíð.
„Ég var að horfa á sjónvarpið með Hafþóri litla bróður mínum. Svo bað mamma mig um að koma og þá sá ég að hún lá á gólfinu. Ég spurði hana hvað ég ætti að gera og hún sagði mér að hringja í 112,“ rifjar Ingvar Óli upp er hann hefur frásögn sína.
Hann segist hafa miðlað þeim upplýsingum sem mamma hans vildi koma áleiðis til neyðarvarðarins hjá Neyðarlínunni og lýst fyrir honum hvað var að gerast. „Ég sagði allt sem mamma sagði mér að segja, að hún væri að svitna og svoleiðis. Svo sagði hann mér að hringja í einhvern sem gæti komið fljótlega og að sjúkrabíllinn væri á leiðinni,“ útskýrir Ingvar Óli. Sjúkrabíllinn kom og sótti Hrefnu en eftir beið Ingvar Óli með litla bróður sínum.
Ingvar Óli, Hrefna og Sigurður eru í ítarlegu viðtali í Feyki sem kom út í dag og segja sögu sína af þessum afdrifaríka degi.