Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum á Hólum í sumar
Hestamannafélagið Skagfirðingur mun sjá um Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum á Hólum og Íslandsmót fullorðna verður haldið á Helllu af hestamannafélaginu Geysi.
Eiðfaxi.is segir að Íslandsmótin verði síðan haldin saman í Kópavogi sumarið 2018 af hestamannafélaginu Spretti en samþykkt var á landsþingi hestamanna, sem fram fór um helgina, tillögu sem segir að á Landsmótsárum verða Íslandsmótin haldin saman en ekki í sitthvoru lagi eins og hefur tíðkast.