Íslandspóstur fækkar dreifingardögum í dreifbýli

Póst- og fjarskiptastofnun hefur heimilað Íslandspósti að fækka dreifingardögum á 75 póstnúmerum, sem dreifð eru um allt land. Samkvæmt ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar, sem birt var á vef stofnunarinnar sl. föstudag, skal fyrirkomulag dreifingarinnar vera 2+3, þ.e. þriðjudag og fimmtudag í viku 1 og mánudag, miðvikudag og föstudag í viku 2 o.s.frv. Breytingin tekur m.a. til Hvammstanga (pnr. 531, 500), Blönduóss (541, 540, 545) og Sauðárkróks (551, 560, 565, 566, 570) og tekur gildi þann 1. mars 2016.
Fram kemur í ákvörðuninni að Íslandspóstur beri við miklum kostnaði við dreifingu í dreifbýli (landpóstdreifingu). Hún hafi aukist hlutfallslega á undanförnum árum með sífellt fækkandi bréfum og að gera megi ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Með því að fækka ferðum um helming á allra dýrustu dreifileiðunum er verið að tvöfalda þann fjölda af bréfum sem afhent eru í hverri ferð og um leið minnka kostnað á hverja einingu. Áætlaður sparnaður vegna breytingu á tíðni dreifingar í dreifbýli geti numið allt að 200 millj.kr. á ári.
Árið 2013 var reglugerð um alþjónustu breytt þannig að ákveðin kostnaðarviðmið voru sett upp hvað gæti talist eðlilegur kostnaður við dreifingu í dreifbýli. Miðað var við að heimilt væri að fækka dreifingardögum í dreifbýli ef kostnaður væri þrefalt meiri en samskonar kostnaður í þéttbýli.
„Útreiknaður kostnaður í sveitum er að meðaltali 69.902 kr. á ári á heimili m.v. 6527 heimili (4,8% heimila) en inní þeirri tölu eru nokkur þorp og byggðarkjarnar. Ljóst er að allar sveitir í dreifbýli falla undir það að kostnaður er þrefalt hærri en meðaltalskostnaður í þéttbýli,“ segir m.a. erindi Íslandspóst til Póst- og fjarskiptastofnunar.
Póst- og fjarskiptastofnun féllst á röksemdarfærslu Íslandspósts og heimilar fækkun dreifidaga í deifbýli. „Íslandspósti ohf. er heimilt að fækka dreifingardögum í samræmi við ákvörðun þessa frá og með 1. mars 2016. Íslandspóstur ohf. skal upplýsa viðskiptavini sína um breytingarnar með hæfilegum fyrirvara fyrir þann tíma. Ákvörðun þessi er kæranleg til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála sbr. 13. gr. laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun. Kæran skal berast úrskurðarnefnd innan fjögurra vikna frá því viðkomandi varð kunnugt um ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar,“ segir í ákvörðunarorðum Póst- og fjarskiptastofnunar.
Ákvörðunin má nálgast á vefnum pfs.is.