Jólakrossgáta Feykis - þrír fá flotta vinninga
Góð þátttaka var í jólakrossgátu Feykis sem birtist í síðasta blaði liðins árs. Dregið hefur verið úr réttum lausnum og fá þrír heppnir þátttakendur vinninga frá Hard Wok, Contalgen Funeral og bókaútgáfunni Sæmundi á Selfossi. Lausnarorðið er: Enginn má fara í jólaköttinn.
Búið er að koma vinningum til vinningshafa eða þeir á leiðinni en þriggja rétta Wok Surprise fyrir tvo frá Hard Wok fékk Guðrún Kristófersdóttir Sauðárkróki. Good Times, nýi diskurinn frá Contalgen Funeral er farinn í póst til Sigrúnar Kjartansdóttur á Akureyri og Forystufé, bók eftir Ásgeir Jónsson frá Gottorp er kominn í hendur Trausta Pálssonar á Sauðárkróki.
Feykir þakkar þeim fjölmörgu sem tóku þátt og óskar vinningshöfum til hamingju.