Jólalag dagsins – Hátíð í bæ
Síðustu tvenn jól hafa verið haldnir tónleikar í Sauðárkrókskirkju til styrktar Fjölskylduhjálp Skagafjarðar. Þar hefur Elva Björk Guðmundsdóttir farið fremst í flokki ásamt fjölskyldu og vinum. „… en þar sem aðstæður leyfa það ekki núna, þá skelltum við í nokkur létt lög án fyrirvara skemmtum okkur konunglega en söknuðum ykkar,“ segir í Fésbókarfærslu tónleikahaldara.
Efnt var í fimm lög og hér fyrir neðan má sjá síðasta lagið og þar eru þau Ingi Sigþór, Róbert Smári og Sveinn Rúnar Gunnarssynir, Margrét Petra Ragnarsdóttir, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Elva Björk sem syngja Hátíð í bæ.
Lagið er bandarískt og heitir upphaflega Winter Wonderland en það var Richard Bernhard Smith „Dick Smith“ sem samdi textann við þetta vinsæla jólalag sem var samið af Felix Bernard.
Til gamans má geta þess að í gærkvöldi komu fram þeir þrír sem ræða við áhorfendur í upphafi myndbandsins hér að neðan á tónleikum sem einnig voru sendir út og til styrktar Fjölskylduhjálp Skagafjarðar. Þá tónleika er hægt að nálgast HÉR.
Munið að margt smátt gerir eitt stórt og ef þið viljið styrkja er reikningur fjölskylduhjálparinnar 0310-13-300565, 560269-7659!! Gleðileg jól.