Jón Karlsson fær Fálkaorðu
Jón Karl Karlsson, fyrrverandi formaður stéttarfélagsins Öldunnar, hlaut í dag riddarakross fyrir störf í þágu verkalýðsmála og réttindabaráttu.
Eftirtaldir fengu orðuna:
Ágústa Þorkelsdóttir bóndi, Refsstað Vopnafirði, riddarakross fyrir störf í þágu dreifbýlis og heimabyggðar
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar
Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar gull- og silfursmíði
Jón Karl Karlsson fyrrverandi formaður Verkamannafélagsins Fram og Alþýðusambands Norðurlands, Sauðárkróki, riddarakross fyrir störf í þágu verkalýðsmála og réttindabaráttu
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fyrrverandi sveitarstjóri, oddviti og alþingismaður, Reykhólahreppi, riddarakross fyrir framlag til félagsmála á landsbyggðinni
Karl M. Guðmundsson fv. íþróttakennari og fræðslustjóri ÍSÍ, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að æskulýðs- og íþróttamálum
María Jóna Hreinsdóttir ljósmóðir, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjendastörf í þágu fósturgreiningar og ljósmóðurfræða
Pétur Gunnarsson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta
Ragnar Guðni Axelsson ljósmyndari, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til ljósmyndunar og umfjöllun um lífshætti frumbyggja á norðurslóðum
Rannveig Löve fyrrverandi kennari, Kópavogi, riddarakross fyrir brautryðjandastarf á sviði lestrarkennslu og störf að málefnum berklasjúklinga
Sigurgeir Guðmundsson formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Hellu, riddarakross fyrir forystu á sviði björgunar og almannavarna