Kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadal
feykir.is
Skagafjörður
12.06.2013
kl. 11.44
Sölvi Sigurðsson og Álfhildur Leifsdóttir áttu sitt þriðja barn í morgun, miðvikudaginn 12. júní kl. 07:17. Fjölskyldan komst ekki í tæka tíð á fæðingadeildina á Akureyri og stúlkan kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadal. Sjúkraflutningamennirnir og ljósmóðirin stóðu sig frábærlega að sögn Sölva.
Sölvi segir á facebook síðu sinni að mæðgunum heilsist vel og föðurnum enn betur. Stúlkan var 16,5 merkur og 53 cm.
Nýfædd dóttir Sölva og Álfhildar.
Mynd: facebook.com/solvisig
