Komst í úrslit á einni stærstu vörusýningu í New York
Í ágúst síðastliðnum tók Lilja Gunnlaugsdóttir hjá Skrautmenum í Skagafirði þátt í vörusýningunni NY Now sem er haldin í New York á hverju ári. Hálsmenið hennar, Þoka, var valið úr 1.800 vörum í sérstakan úrslitaflokk. Sýnendur á sýningunni, sem er helguð lífsstíl og hönnun, voru 2.300 talsins og er talið að 24.000 kaupendur og meira en 400 fjölmiðlamenn hafi sótt hana heim.
Hálsmenið Þoka er handgert, úr handmáluðum trékúlum og roði. Valdar voru 25 nýjar vörur úr þeim 1.800 sem voru á sýningunni til að keppa um bestu nýju vöruna og var Þoka þar á meðal. „Þó ég hafi nú ekki staðið uppi sem sigurvegari var frábært að komast í úrslitaflokkinn. Hálsmenið varð fyrir vikið vinsælasta varan mín á sýningunni.“ segir Lilja sem sýndi líka silkiklúta úr þvottheldu laxaroði og nýja textíllínu sem inniheldur púða og dúka úr 100 prósent bómull.
Rætt er við Lilju í nýjasta tölublaði Feykis, sem kom út á miðvikudaginn. Þess má einnig geta ða vinnustofa Skrautmen, sem er í Áshildarholti, í um tveggja kílómetra fjarlægð frá Sauðárkróki, verður opin í dag frá klukkan 16 til 18.