KS veitir sveitarfélögunum í Skagafirði 200 milljón króna styrk til samfélagslegra verkefna

Við undiritun í dag. Mynd: SMH
Við undiritun í dag. Mynd: SMH

Kaupfélag Skagfirðinga greindi frá því við athöfn í dag sem fram fór í Húsi frítímans á Sauðárkróki, að fyrirtækið hefur ákveðið að veita sveitarfélögunum í Skagafirði sérstakt framlag til samfélagslegra verkefna í Skagafirði sem hljóðar upp á 200 milljónir króna.

Kaupfélagið gerði eftirfarandi bókun á fundi sínum þann 1. júlí 2021 og las Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri, hana upp fyrir viðstadda.

Kaupfélag Skagfirðinga samþykkir að leggja fram krónur 200 milljónir á næstu tveimur árum til samfélagslegra verkefna í Skagafirði. Þessar 200 milljónir eru hugsaðar sem stuðningur við verkefni á vegum sveitarfélaga í Skagafirði, sem ætluð eru til að bæta búsetugæði í héraði, m.a. með því að leggja og bæta göngustíga, malbika sérstök svæði, fjölga útivistarsvæðum, byggja upp skíðasvæði í Tindastóli, bæta félagsaðstöðu íbúa, og margt annað hvað varðar umhverfi og búsetugæði almennt í héraðinu. Með þessu m.a. vill fyrirtækið undirstrika samfélagslega ábyrgð sína og skapa sem bestar aðstæður og umhverfi fyrir íbúa Skagafjarðar.
 

Fulltrúar Kaupfélagsins; Bjarni Maronsson, stjórnarformaður og Herdís Sæmundardóttir varaformaður, og fulltrúar Sveitarfélaganna; Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar og Hrefna Jóhannesdóttir, oddviti Akrahrepps, skrifuðu síðan undir staðfestingu á þessu framlagi. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins veittu staðfestingunni vottun sína en þeim var sérstaklega boðið í Skagafjörð af þessu tilefni. Karl Björnsson var einnig viðstaddur undirritunina en hann er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra Sveitarfélaga.

Þórólfur Gíslason sagði í tölu sinni að Kaupfélag Skagfirðinga hefur boðið gæfu til þess að vera tiltölulega efnahagslega öflugt og með góðan rekstur.
"Við viljum sýna það með þessu eins og ýmsu öðru, að við viljum byggja upp öflugt skagfirskt samfélag og við viljum fyrst og síðast eiga gott samstarf við alla sem að byggja þetta hérað og við viljum sýna að það skiptir Kaupfélagið miklu máli að vel takist til."

 
 

/SMH

 

 

Fleiri fréttir