Kvennasveit GSS keppir á Íslandsmóti golfklúbba

Kvennasveit Golfklúbbs Sauðárkróks tekur þátt í Íslandsmóti Golfklúbba, 1.deild, sem haldið verður nú um helgina, dagana 26.-28.júlí. Átta sveitir eru í deildinni. Að þessu sinni verður leikið á tveimur völlum og er það nýlunda, hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og Golfklúbbnum Oddi (GO). 1. deild karla verður einnig leikin samtímis á þessum völlum. 

Keppnisfyrirkomulagið er holukeppni þar sem sex spila í einu þ.e. fjórir tvímenningsleikir og einn fjórmenningur. 

Sveit Golfklúbbs Sauðárkróks skipa:
Anna Karen Hjartardóttir
Árný Lilja Árnadóttir
Dagbjört Hermundsdóttir
Hildur Heba Einarsdóttir
Sigríður Elín Þórðardóttir
Sólborg Hermundsdóttir
Telma Ösp Einarsdóttir
Liðsstjóri: Árný Lilja Árnadóttir 

Liðin sem leika í 1. deild kvenna eru: 

A-riðill: Golfklúbbur Reykjavíkur, Golfklúbbur Mosfellsbæjar, Golfklúbbur Suðurnesja og Golfklúbbur Vestmannaeyja.

B-riðill: Golfklúbburinn Keilir, Golfklúbbur Kópavogs og Garðarbæjar, Golfklúbburinn Oddur og Golfklúbbur Sauðárkróks.

Hægt verður að fylgjast með stöðunni á www.golf.is þar sem uppfært verður að loknum hverjum leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir