Kvöldstund með Helga Björns – 30 ára söngafmæli

Hinn landsþekkti söngvari og leikari Helgi Björnsson er að fagna 30 ára söngafmæli um þessar mundir. „Það eru 30 ár síðan fyrsta hljómplatan kom út með þessum ástsæla söngvara, en það var Grafík - Get ég tekið sjéns sem innihélt m.a. lögin Mér finnst rigningin góð, 16 og Þúsund sinnum segðu já. Síðan tók við óslitin sigurganga með Síðan skein sól, Reiðmönnum vindanna og undir eigin nafni,“ segir í fréttatilkynningu.

Helgi ætlar að fagna þessum tímamótum með 30 tónleikum víðsvegar um landið undir heitinu Kvöldstund með Helga Björns, þar sem Helgi mun rifja upp ferilinn í tali og tónum, segja frá tilurð laganna, rifja upp einhverjar rokksögur og taka fram gamlar poppflíkur og nokkur góð dansspor.

Meðreiðarsveinn Helga verður Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari Hjaltalín og munu þeir félagar galdra fram tóna úr hinum ýmsu hljóðfærum.

Í fréttatilkynningu kemur fram að ferðin verði væntanlega filmuð með það fyrir augum að gera heimildarmynd um ferðina. Einnig verður gefið út safn 60 laga frá ferlinum á þremur geisladiskum með þremur nýjum lögum.

Lagt var af stað í fyrsta legginn í september og nú er komið að Sauðárkróki – Kaffi Krók laugardaginn 4. október kl. 20:30.

Fleiri fréttir