Lagning hitaveitu um Óslandshlíð, að Neðra -Ási og Ásgarðsbæjum hefst í vor
feykir.is
Skagafjörður
28.12.2018
kl. 09.13
Á fundi veitunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem haldinn var þann 21. desember sl. var fjallað um fyrirhugaða lagningu hitaveitu um Óslandshlíð að Neðra Ási og Ásgarðsbæjunum.
Á fundinn mætti Bragi Þór Haraldsson frá Verkfræðistofunni Stoð ehf. og fór hann yfir hönnun og kostnaðaráætlun vegna lagningar veitunnar. Nefndin samþykkti að unnið verði að útboðsgögnum fyrir efnis- og vinnulið framkvæmdarinnar þannig að unnt verði að hefja framkvæmdir að vori 2019.
Einnig var samþykkt að ljúka hönnun á hitaveitu í Hegranesi samhliða hönnun á hitaveitu í Óslandshlíð, Viðvíkursveit og Hjaltadal og verður fimm ára framkvæmdaáætlun gefin út í janúar.