Landbúnaðarráðherra keyrði dýrum á kjörstað í dag

Gunnar Bragi Sveinsson í hópi dýra sem hann flutti á kjörstað í dag. Mynd: PF
Gunnar Bragi Sveinsson í hópi dýra sem hann flutti á kjörstað í dag. Mynd: PF

Það var nóg að gera hjá íbúum Hálsaskógar í dag því allir kusu þeir tvisvar í dag og sumir þeirra þrisvar. Í þriðja skiptið fengu sum þeirra far með Gunnari Braga Sveinssyni landbúnaðarráðherra á kjörstað.

Patti broddgöltur kvartar við landbúnaðarráðherra undan asnalegum lögum í Hálsaskógi.Leikfélag Sauðárkróks sýnir um þessar mundir leikritið Dýrin í Hálsaskógi og eins og flestir vita er kosið þar um lögin frægu sem Marteinn skógarmús setti saman. Í dag voru tvær sýningar á verkinu og því þurftu dýrin að kjósa tvisvar um lögin. Þegar seinni sýningunni lauk dreif leikhópurinn sig á kjörstað þar sem kosið er til Alþingis og kusu þá sumir í þriðja skiptið í dag. Svo vel vildi til að Gunnar Bragi Sveinsson landbúnaðarráðherra var staddur í Bifröst til að sækja son sinn, sem tekur þátt í uppsetningunni, og var hann að sjálfsögðu munstraður sem bílstjóri einhverra dýranna. Engar sögur fóru af því að hann reyndi að hafa áhrif á það hvað dýrin kysu en Patti broddgöltur kvartaði þó sáran undan því hversu ósanngjörn lögin hans Marteins væru. Þau eru einföld og ætti að mati Marteins að fara inn í stjórnarskrá Íslands en þau hljóma þannig:

1.grein. Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

2.grein. Ekkert dýr má borða annað dýr.

3.grein. Sá sem er latur og nennir ekki að afla sér matar, má ekki taka mat frá öðrum.

 

Fleiri fréttir