Landslið Íslands í hestaíþróttum fullskipað

Nítján knapar skipa landsliðið í hestaíþróttum sem keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í Austurríki sem hefst 1. ágúst nk. Þrír heimsmeistarar frá HM 2009 eiga keppnisrétt á HM 2011 en þar á meðal er Króksarinn Jóhann Skúlason. Elvar Einarsson á Skörðugili var valinn í liðið af liðstjórum en hann varð Íslandsmeistari fyrir stuttu í 250 metra skeiði ásamt Kóngi frá Lækjarmóti. Helga Una Björnsdóttir frá Syðri-Reykjum í V-Húnavatnssýslu var valin kynbótaknapi með Smá frá Þúfu í 5v hryssum.

Landssamband hestamannafélaga er afar stolt af liðinu sem hefur á að skipa reyndum og sterkum knöpum og hestum og væntir mikils af því á keppnisvöllunum í St. Radegund í Austurríki í ágúst.

Landslið Íslands er þannig skipað:

  • Íþróttaknapar
  • Heimsmeistarar frá 2009:
    Jóhann Rúnar Skúlason og Hnokki frá Fellskoti – T1 og V1
  • Bergþór Eggertsson og Lotus van Aldenghoor – 250m, 100m og gæð.sk.
  • Rúna Einarsdóttir-Zingsheim og Freyr von Nordsternhof – T2, F1, 100m og gæð.sk.

Fullorðnir valdir eftir lykli Landsliðsnefndar LH:

  • Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi – T1 og V1
  • Eyjólfur Þorsteinsson og Ósk frá Þingnesi – T2 og V1
  • Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri – T1, F1, 250m, 100m og gæð.sk.
  • Hulda Gústafsdóttir og Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu – T1 og V1

Ungmenni valin eftir lykli Landsliðsnefndar LH:
Hekla Katharina Kristinsdóttir og Gautrekur frá Torfastöðum – T1 og V1

Fullorðnir liðstjóravaldir:

  • Haukur Tryggvason og Baltasar  vom Freyelhof – T1, F1, 100m og gæð.sk.
  • Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjarmóti – T1, F1, P1, P2 og PP2.
  • Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki – T1 og V1

Ungmenni liðstjóravalin:

  • Agnes Hekla Árnadóttir og Vignir frá Selfossi – T1 og V1
  • Arnar Bjarki Sigurðarson og Röskur frá Sunnuhvoli – T1 og V1

Kynbótaknapar og hross

  • Vignir Jónasson og Gjöf frá Magnússkógum – 7v og eldri hryssur
  • Erlingur Erlingsson og Rauðhetta frá Kommu – 6 v hryssur
  • Helga Una Björnsdóttir og Smá frá Þúfu – 5v hryssur
  • Jakob Svavar Sigurðsson og Glotti frá Sveinatungu – 7v og eldri stóðhestar
  • Sigurður Matthíasson og Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu – 6v stóðhestar
  • Sigurður Óli Kristinsson og Feykir frá Háholti – 5v stóðhestar

Hestarnir munu fljúga út næstkomandi sunnudag og knapar munu svo mæta til Austurríkis fimmtudagsmorguninn 28. júlí.

Fleiri fréttir