Lárus Ástmar Hannesson nýr formaður LH
Lárus Ástmar Hannesson frá hestamannafélaginu Snæfellingi er nýr formaður Landssambands hestamannafélaga. Þrjú framboð bárust til formennsku samtakanna, frá Lárusi Ástmar Hannessyni, Stefáni G. Ármannssyni, Dreyra og Kristni Hugasyni frá Spretti en Kristinn dró framboð sitt tilbaka.
Formannskosningar fóru fram í morgun, á seinni hluta Landsþings hestamanna í Reykjavík, en skemmst er að minnast að þinginu, sem fram fór á Selfossi um miðjan október, var slitið eftir að Haraldur Þórarinsson ákvað að segja af sér og öll stjórnin fylgdi í kjölfarið.
Á landsþinginu í morgun var Lárus kjörinn af þingfulltrúum félaganna með 88 greiddum atkvæðum, Stefán Ármannsson hlaut 62 atkvæði og 4 seðlar voru auðir.
Á þinginu var einnig kosin ný stjórn LH sem mun skipa stjórnina næstu tvö árin. Hana skipa; Ólafur Þórisson, Geysi (88 atkvæði), Stella Björg Kristinsdóttir, Spretti (96), Jóna Dís Bragadóttir, Herði (141 atkvæði), Haukur Baldvinsson, Sleipni (102), Andrea Þorvaldsdóttir, Létti (85) og Eyþór Gíslason, Glað (137 atkv.) og sem fyrr segir er Lárus Á. Hannesson formaður.
Í varastjórn voru kosin í eftirfarandi röð, samkvæmt fjölda atkvæða: Helga B. Helgadóttir, Fáki, Rúnar Þór Guðbrandsson, Herði, Sigurjón Rúnar Bragason, Fáki, Hrönn Kjartansdóttir, Herði og Petra Kristín Kristinsdóttir, Sindra.
„Við þurfum að finna leiðir til að negla þetta til framtíðar“
Í viðtali við Hestafréttir segir Lárus hið nýja embætti leggist vel í hann og að spennandi tímar séu framundan. Hann segist finna fyrir góðum anda á þinginu, verið sé að skipa nýja áhöfn og að honum sýnist allir ætli að róa í sömu átt.
Lárus segist fyrst og fremst ætla að leggja áherslu á sameiningu og samvinnu innan LH - markmiðið sé að vinna meira saman og að hafa gaman af þessu. „Við þurfum að hugsa um meira en bara Landsmót, hestamennska er svo stórt og víðtækt sport og áhugamál, við verðum að sinna því líka,“ segir Lárus í samtali við Hestafréttir.
Aðspurður um staðsetningu á næsta Landsmóti hestamanna segir hann að það sé mál sem verði að lenda og finna lausn á. Það hafi tekið of mikla orku og að of neikvæð umræða hafi skapast í kringum landsmótið sem hafi skapað sundurlyndi á meðal félaga LH. „Við þurfum að finna leiðir til að negla þetta til framtíðar,“ segir hann.
Að neðan má sjá viðtal Hestafrétta við hinn nýkjörna formann.
http://youtu.be/xb0T6Gbtc0Y
Heimildir: Isibless.de og Hestafréttir.is