Lesið úr nýjum bókum á bókasafninu á Sauðárkróki

Í kvöld, þriðjudaginn 19. nóvember, munu nokkrir höfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum á bókasafninu á Sauðárkróki og hefst samkoman klukkan 20:00.

Höfundarnir fimm sem lesa úr bókum sínum eru þau Einar Kárason, Guðjón Ragnar Jónasson, Óskar Magnússon, Sigríður Þorgrímsdóttir og Sigurður Hansen. Auk þess mun Kári Gunnarsson kynna 9. bindi Byggðasögu Skagafjarðar sem fjallar um Holtshrepp í Fljótum.

Að vanda verður boðið upp á ljúffengt jólate og eru allir velkomnir.

Fleiri fréttir