Lokað fyrir heita vatnið "út að austan" á morgun

Íbúar út að austan, Hofsós og nærsveitir. Vegna viðgerðar á stofnlögn þarf að loka fyrir heita vatnið frá Hrolleifsdal á morgun þriðjudag 8. nóvember. Heitavatnslaust verður á öllu svæðinu frá Hrolleifsdal og inn í Viðvíkursveit.

Lokað verður fyrir vatnið um kl. tíu og mun viðgerðin standa fram eftir degi. Athugið að skrúfað sé fyrir krana svo ekki komi til tjóns þegar vatni verður hleypt á aftur. Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir