Lokað hjá Sýslumanni á morgun
Skrifstofur sýslumannsins á Norðurlandi vestra á Blönduósi og á Sauðárkróki verða lokaðar á morgun, föstudaginn 30. september vegna starfsdags. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem starfsdagur er haldinn eftir sameiningu skrifstofanna á stöðunum tveimur.
„Það er mikilvægt að einingarnar hittist og samræmi verklag. Við verðum á Siglufirði og byrjum á því að heimsækja samstarfsfólk okkar þar hjá sýslumanninum á Norðurlandi eystra og fáum kynningu hjá þeim. Svo verður farið yfir innra skipulag embættisins; starfsmannastefnu, vinnuvernd o.fl.,“ segir Erna Björg Jónmundsdóttir, deildarstjóri. Starfsmenn embættisins eru nú 24, nítján á Blönduósi og fimm á Sauðárkróki.