Lokahóf Ræsingar í Skagafirði í dag

Í fyrra efndi Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samstarfi við Kaupfélag Skagfirðinga og Sveitarfe´lagið Skagafjörð, til samkeppni um góðar viðskiptahugmyndir í Skagafirði undir yfirskriftinni “Ræsing í Skagafirði.” Einstaklingum, hópum og fyrirtækjum var boðið að senda hugmyndir í keppnina.

Alls bárust 24 umsóknir á sínum tíma og voru þrjár þeirra valdar til áframhaldandi þróunar. Er um að ræða verkefni Harðar Sveinssonar sem snýst um lífræna byggingareinangrun, verkefni Hildar Þóru Magnúsdóttur sem er að þróa bætiefni úr þurrkuðum skjaldkirtli sláturdýra og verkefni Regins Grímssonar sem hyggst byggja einingahús úr trefjaplasti. Öll hafa þessi verkefni verið þróuð samkvæmt samstarfssamningi sem var undirritaður við Nýsköpunarmiðstöð Íslands í september.

Í dag kl. 16:00 er boðað til lokahófs í Verinu, Vísindagörðum að Háeyri 1 á Sauðárkróki þar sem sigurvegari keppninnar verður kynntur auk þeirra verkefna sem tóku þátt í Ræsingu í Skagafirði. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti auk ljúfra tóna frá Tónlistarskóla Skagafjarðar.

Fleiri fréttir