Maddömukot á leið í Viðvíkursveitina

Maddömukot hefur verið í ýmsum hlutverkum. Mynd: feykir.is
Maddömukot hefur verið í ýmsum hlutverkum. Mynd: feykir.is

Síðsumars auglýsti Skagafjörður eftir áhugasömum aðilum til að taka við Maddömukoti í núverandi ástandi án endurgjalds, gegn því skilyrði að húsið verði flutt á nýjan stað og gert upp í samræmi við kröfur Minjastofnunar Íslands. Húsið er aldursfriðað samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012, sem þýðir að hvorki má rífa það né breyta á nokkurn hátt án samþykkis Minjastofnunar Íslands.

Ein umsókn barst um að fá að taka við húsinu frá Guðríði Björk Magnúsdóttir með það í huga að staðsetja húsið í Viðvík. Ætlunin er að veita húsinu hlutverk við að varðveita sögur sem hafa tengingar við Viðvík.

Byggðarráð samþykkti samhljóða að verða við umsókn Guðríðar Bjarkar Magnúsdóttur og fól sveitarstjóra að ganga til samninga við hana. Húsið skal flutt af núverandi stað fyrir 1. júní 2027.

Feykir spurði Guðríði hvað húsið yrði notað í og stóð ekki á svörum: „Gera það upp, breyta nafninu í upphaflegt nafn Geyma í því gamla muni og sögu presta sem hafa þjónað í Viðvík ásamt sögu Þorbjörns önguls og fóstru hans Þurríði sem er partur úr Grettissögu.“

Feykir óskar Guðríði til lukku með Maddömukot og hlakkar til að kíkja í heimsókn í framtíðinni. /hmj

Fleiri fréttir